anddyri



Umgjörð og innihald í stíl


Innréttingar á Silfri eru sígildar að formi en efnisnotkun er nýstárleg og myndar þannig kærkomið skjól frá hversdagsleikanum. Silfur er hliðræn veröld, ætluð til upplyftingar og upplifunar í mat og drykk með góðum vinum. Matreiðslan á Silfri er í takt við yfirborðið, gamall grunnur, íslenska eldhúsið með sínum hefðum og venjum, tekið og umbylt  með það að markmiði að útkoman verði eftirminnileg.

Við tökum þér fagnandi.

Silfur - hjarta Borgarinnar